Fyrirtækið
Fagsmíði ehf. var stofnað árið 1995 af Gunnari Erni Rúnarssyni, húsasmíðameistara, og Ástu Samúelsdóttur skrifstofustjóra fyrirtækisins.
Fyrirtækið hefur verið með sömu kennitölu frá upphafi eða í 15 ár. Það er eitthvað sem fá fyrirtæki í byggingariðnaði geta státað af og erum við stolt af því. Við teljum það vera merki um traust og áreiðanleika í viðskiptum.
Skrifstofa og verkstæði Fagsmíði eru í sama húsnæði að Kársnesbraut 98, 200 Kópavogi. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því hringja í okkur eða senda tölvupóst.
Faglærðir smiðir
Hjá Fagsmíði ehf. starfa einungis faglærðir íslenskir smiðir og húsasmíðameistarar. Við erum fyrirtæki sem býður upp á mjög góða þjónustu og því er mikilvægt að okkar starfsmenn séu reynslumiklir fagmenn. Fagsmíði er mjög stolt af sínum starfsmönnum.
Fagsmíði er aðili að Meistarafélagi iðnaðarmanna Hafnarfirði og Samtökum iðnaðarins

Fagsmíði ehf.
Kársnesbraut 98
200 Kópavogur
s. 540-3900
fagsmidi@fagsmidi.is